Færsluflokkur: Menning og listir
Fréttabréf 2010
15.11.2010 | 16:22
Kæri félagsmaður Þjóðbúningafélags Vestfjarða.
Ný stjórn var kosin á síðasta aðalfundi félagsins sem var haldinn 26. mars s.l. Hún er þannig skipuð: Margrét Skúladóttir formaður, Anna Jakobína Hinriksdóttir varaformaður, Sigríður Helgadóttir gjaldkeri, Hrafnhildur Hafberg ritari og Soffía Þóra Einarsdóttir meðstjórnandi. Einnig voru 2 endurskoðendur valdir.
Ákveðið var á aðalfundi að félagsgjöld verði 2500 kr. á ári. Þeir sem greiða gjaldið teljast félagar í Þjóðbúningafélaginu. Einnig var samþykkt að ganga til samstarfs við Heimilisiðnaðarfélagið og munu 500 kr. af félagsgjaldinu renna til þess. Þjóðbúningafélag Vestfjarða verður fyrsta félagið á landsbyggðinni sem gengur til samstarfs við Heimilisiðnaðarfélagið. Samningaviðræður eru í gangi um þau fríðindi sem félagar ÞV munu njóta af þessu samstarfi, en það má nefna t.d. afslátt í verslun.
Tvær nefndir voru skipaðar:Námskeiðsnefnd: Anna Jakobína, Soffía Þóra, Margrét SkúlaDagatalsnefnd: Hrafnhildur, Sigþrúður, Matthildur
Helstu atriði úr starfsemi félagsins á árinu:
· Sýning var haldin í Safnahúsinu snemmsumars í samstarfi við Kvenfélagið Hlíf.
· Félagið stóð fyrir menntun tveggja kennara sem eru hér á svæðinu og leiðbeina á námskeiðunum í vetur.
· Námskeiðin voru auglýst í öllum þéttbýliskjörnum á svæðinu og er námskeiði í 20. aldar upphlut að ljúka um áramót.
· Eftir áramót er stefnt að því að hafa námskeið í upphluti barna, peysufötum og balderingu (ef næg þátttaka fæst), er skráning þegar hafin á þau. Dagatalsnefnd hefur starfað í sumar og haust og mun dagatalið koma út í byrjun desember. Eru félagsmenn hvattir til að styrkja félagið og kaupa dagatalið (tilvalin jólagjöf). Hægt er að nálgast dagatölin hjá dagatalanefnd eða stjórn félagsins
Framundan hjá félaginu:
· Föstudaginn 14. janúar 2011 ætlar Þjóðbúningafélag Vestfjarða að halda miðvetrarfagnað þar sem félagsmenn mæta í búningum og gera sér glaðan dag. Staður og nánari upplýsingar verður auglýst síðar í svæðisfjölmiðlum.
· Aðalfundur mun verða haldinn 11. mars 2011, hann verður auglýstur með viðeigandi hætti þegar nær dregur. Við hvetjum alla félagsmenn til að nota búningana sína við sem flest tækifæri.
F.h stjórnar,
Margrét Skúladóttir formaður Hrafnhildur Hafberg ritari
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vetrarstarf og Gaman saman
25.8.2009 | 14:35
Dagatal
25.8.2009 | 14:26
Saumakvöld einu sinni í mánuði
28.10.2008 | 11:09
Við ætlum að prufa að hafa saumakvöld fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði frá kl. 20:00 til 22:00 í salnum á efri hæð í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Allir félagar eru velkomnir. Fyrsta saumakvöldið verður þriðjudaginn 4. nóvember
Hlökkum til að sjá sem flesta,
Anna Jakobína Hinriksdóttir og Margrét Skúladóttir
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aðalfundur Þjóðbúningafélags Vestfjarða
9.10.2008 | 22:54
Aðalfundur Þjóðbúningafélags Vestfjarða verður haldinn í Félagsheimilinu Hnífsdal þann 16. október 2008 klukkan 20:00
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
Umræður um starfsemi félagsins, framtíðarhorfur og framtíðarsýn.
Stjórn Þjóðbúningafélags Vestfjarða
Munið eftir heimasíðunni
Menning og listir | Breytt 16.10.2008 kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Námskeið í vetur
28.9.2008 | 21:03
Nú fer vetrarstarfsemi Þjóðbúningafélags Vestfjarða senn að hefjast. Í tilefni af því ákváðum við að senda út eins konar fréttabréf með upplýsingum um hvað verður á döfinni í vetur bæði í tölvupósti og með tilkynningum á þessa heimasíðu. Þó fyrr hefði verið kunna sum ykkar að hugsa. Í vetur munið þið fá tilkynningar í tölvupósti þegar breytingar verða eða nýjar upplýsingar berast um tímasetningar á námskeiðum og þess háttar.
Stjórnarfundur verður haldinn núna í lok september og aðalfundur í framhaldi af því. Fundarboð á aðalfundinn verður sent síðar. Sú hugmynd hefur komið upp að halda árshátíð fljótlega eftir áramótin, þá færum við út að borða, vitaskuld klæddar í þjóðbúninga. Látið endilega heyra frá ykkur hvað ykkur finnst um þetta.
Eftirfarandi námskeið verða í boði í vetur. Athugið að þau falla niður ef ekki fæst næg þátttaka. Ef þið viljið skrá ykkur á einhver af eftirtöldum námskeiðum þá svarið þessum pósti eða sendið póst á greta@snerpa.is Ef þið þekkið einhverja sem langar á námskeiðin en eru ekki í félaginu þá endilega hvetjið þau til að hafa samband við okkur.
Fyrir áramót
Perlu og flauelsskurður
*Staður: Reykjavík, Heimilisiðnaðarskólinn Nethyl 2e
*Tími: 18. og 19. okt.
*Kostnaður: 12.800 efni innifalið
*Lengd 8 klst
Nú þegar hafa 5 skráð sig (þær sem eru að sauma faldbúning) meiningin er að sameinast um bíla og fara keyrandi .
Baldering
*Staður: Félagsheimilið Hnífsdal
*Tími: fyrirhugað í okt. - nóv. nánar auglýst síðar
*kennari: Herdís Pétursdóttir
*Kostnaður: kr. 42.000 +1000 kr skráningagjald efni innifalið
*Lengd 32 klst.
Nú þegar hafa 4 skráð sig en lágmark er 6-8
Eftir áramót
Búningasaumur
Upphlutur/peysuföt
*Staður: Félagsheimilið Hnífsdal
*Tími: febrúar til apríl nánar auglýst síðar
*Kennari: Guðrún Hildur Rosenkjær
*Kostnaður: kr. 79.500 +1000 kr skráningagjald ,auk efniskostnaðar (frá u.þ.b. 40.000)
*lengd: 40 klst. (4 helgar)
Nú þegar hafa 5 skráð sig en lágmark er 6-8
Herrabúningur:
*Staður: Félagsheimilið Hnífsdal
*Tími: febúar til apríl nánar auglýst síðar
*Kennari: Guðrún Hildur Rosenkjær
*Kostnaður: kr. 79.500 +1000 kr skráningagjald, auk efniskostnaðar (frá u.þ.b. 40.000)
*Lengd: 40 klst. (4 helgar)
1 skráð en lágmark er 6-8
Möttull, skyrta og svunta:
*Staður: Félagsheimilið Hnífsdal
*Tími: febúar til apríl nánar auglýst síðar
*Kennari: Guðrún Hildur Rosenkjær
*Kostnaður: 29.200 -36.500+1000kr skráningagjald, auk efniskostnaðar
*LengdL um.þ.b 2 helgar)
4 skráðar en lágmark er 6-8 athugið að hægt er að skrá sig í að gera eingöngu möttul eða svuntu eða skyrtu.
Bestu kveðjur og gangi ykkur vel
Matthildur Helga og Jónudóttir
Margrét Skúladóttir
Anna Jakobína Hinriksdóttir
Guðbjörg Ólafsdóttir
Þjóðbúningafélag Vestfjarða
26.9.2008 | 16:08
Þjóðbúningafélag Vestfjarða var stofnað þann 10. mars 2007 og voru stofnfélagar 9 í dag eru þeir orðnir 37. Markmið félagsins er að gera þjóðbúninginn að almenningseign á Vestfjörðum og hvetja þá sem eiga búninga að nota þá við sem flest tækifæri. Starfsemi félagsins hefur að mestu snúist um námskeiðahald þar sem félagar sauma búninga á sig og sína. Tvær sýningar á íslenskum búningum og munum tengdum þeim hafa verið haldnar í samstarfi við Byggðasafn Vestfjarða í Gamla Sjúkrahúsinu á Ísafirði.
Á árunum 2007 og 2008 stóð félagið fyrir 5 námskeiðum í búningasaum og balderingu. Þegar hafa verið saumaðir herrabúningar, peysuföt, upphlutir og gömlum búningum verið breytt eða þeir saumaðir upp. Telst okkur til að nú þegar hafi verið saumaðir yfir 30 búningar á námskeiðum félagsins auk þess að milli 5 og 10 búningar eru í vinnslu, þar af eru nokkrar konur að sauma faldbúning.
Á þessari síðu verða settar inn upplýsingar um væntanleg námskeið og fréttir og myndir af starfsemi félagsins. Hafir þú áhuga á að ganga í Þjóðbúningafélag Vestfjarða og taka þátt í námskeiðum á vegum félagsins sendu þá póst á greta@snerpa.is